Maður má ekki taka sér smá frí frá fjölmiðlum

Þá springur allt í loft upp!!! eða borgarstjórnin réttara sagt.

Lýst vel á að sjálfstæðisflokkur sjái ekki um borgina lengur og sérstaklega að Vilhjálmur sé EKKI borgarstjóri.

Þá get ég kannski farið af stað með undirskriftarlista frá nemendum við fjölsbrautaskólanum við ármúla og fyrirtækja þar í kring um ósk um að bílastæðahús verði byggt þar sem það sár vantar bílastæði á þetta svæði en mér skildist á borgarstjórnin hefði ekki samþykkt það. Sjáum hvað setur - þetta tekur nokkra mánuði að fara í hendur borgarstjórnar þar sem ég á eftir að safna undirskriftarlistum.

En ekki finnst vinnubörgð Björns Inga vera heiðarleg. og hefði ég viljað sjá hann hvernig nálægt borgarstjórn!!!


mbl.is Samkomulag um nýjan meirihluta handsalað klukkan 14
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Heppnin hér á ferð

Þessi kengúra er ekkert smá heppin að hafa komist frá þessu slysalaust og hvað þá keppendurnir. sá einmitt um daginn að þá fór héri eða eitthvað álíka dýr inn á kappasktursbraut en það endaði ekki eins vel - heldur já fór dýrið í fljótandiform.

En allt er gott sem endar vel.


mbl.is Kengúra tók þátt í kappakstri
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ja svo

Svo er sagt.

En það mætti kannski rannsaka betur ástæður þess að fólk sé að henda svona mikið af matvælum!!!

Ég hef lent í því að ég hef verið að kaupa grænmeti og ávexti sem litu MJÖG vel út þegar ég var í búðinni en svo þegar heim var komið þá reyndist þetta vera meira og minna MYGLAÐ og SKEMMT. Ekki bíð ég nokkrum manni uppá svona viðbjóð og ekki gat ég farið í búðina og heimta að fá endurgreitt svo hvað gerir maður  jú maður fleygir þessu drasli í ruslið þar sem það á heima.

Þetta er bara eitt af mörgun dæmum.


mbl.is Hver Íslendingur hendir 82 kg af mat á ári
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Loksins

Mér lýst vel á Öryrkjabandalagið undir stjórn Sigusteins Mássonar.

Vona bara að ákveðnir alþingisflokkar standi við loforðin sem þeir lofuðu í vor. enda eru þessar blessuðu bætur ekki neitt til að hrópa húrra yfir.

Finnst bara að alþingismenn eigi að hætta að dásama heilbrigðiskerfið okkar því það er margt þar sem er ábótavant eins og hvernig komið er fyrir öryrkjum og margt annað.

Flestir sem lenda í því að þufa að fá þessar bætur eru ekki að gera það að gamni sínu þó svo að vissulega séu skemmd epli inni á milli en það er allstaðar en það á samt ekki að bitna á þeim sem virkilega þurfa á þessu að halda.

 


mbl.is Öryrkjar, lágtekjufólk og aldraðir fái að njóta skattalækkana
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

The smælí man

já ég hélt að þessi litli kall :-) væri eldri en 25 ára.

Svona er maður ruglaður stundum. en þessi kall er ansi vingjarnlegur og nota ég hann ansi mikið. Kannski einum of mikið.

Maðurinn minn gæti allt eins sagt að ég væri að halda framhjá sér með honum hehehe ef hann væri svo klikk en það er hann ekki.

En það er bara svo að þessi kall getur stundum breytt algjörlega deginum fyrir manni. Ef maður hefur átt slæman dag og fær svo email og einn svona kall er þar þá er ekki laust við að maður sé farinn að brosa.

Segi bara til hamingju allir með smiley kallinn Wizard


mbl.is Broskallinn er 25 ára í dag
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

anda inn - anda út

já sumir ættu að anda aðeins og telja uppá 10 áður en það ákveður að gera eitthvað.

Þessi vesalings kona ætti að fá hjálp við að hemja reiði sína.

Það vita flestir að það kostar að koma með bíl í endurskoðun - annað væri ósanngjart. En ein leið til að koma í veg fyrir að fá endurskoðun er að fara með bílinn á verkstæði áður og láta laga það sem þarf að laga og fá svo skoðun - en jú það kostar líka pening að fara með bíl á verkstæði.

En konan ætti að fá sekt fyrir þetta og þá kannski í formi reiðisnámskeiðs og borga skaðann sem hún olli.

vona að greyið konan hugsi sig betur um næst.


mbl.is Reiddist rukkun fyrir endurskoðun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þetta get ég ekki skilið...

Hvernig er það, þegar maður hefur verið dæmdur í 16ára fangelsi fyrir morð af ásetturáði getur maður þá komist hjá því að vera geymdur bakvið lás og slá???

Þetta finnst mér ekki vera rétt. En réttarkerfið okkar er svosem ekki rétt heldur.

En ég get ekki sagt að mér finnist ég vera örugg þegar ég heyri svona fréttir. Það er ekkert sem réttlætir svona mistök hjá lögreglunni.

En þar sem verið var að segja í útvarpinu að hann væri fundinn þá ætti hann auðvitað að afplána sinn dóm og aðeins meira en það fyrir að hafa strokið og einnig þann tíma sem hann var fyrir utan veggja fangelsisins.

Mér finnst heldur ekki rétt í svona málum og kynferðisafbrotamálum að leifa fólki að sleppa með minni dóm vegna góðrar hegðunar - því það er jú ekkert mál að sína góða hegðun bakvið lás og slá. Dómur er dómur og hann skal afplána.


mbl.is Strokufangi fundinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Best að passa sig!!!

Já þið sem eruð með sílikon eða aðrar fyllingar í ykkar brjóstum að þá er eins gott að passa sig á býflugunum - þær geta stungið gat og þá er brjóstið farið...ekki gaman að því.

En þetta staðfesti það enn og aftur fyrir mér afhverju ég fæ mér EKKI sílkon brjóst!!! eða aðra fyllingu í mín náttúrulegu brjóst

 


mbl.is Býfluga gerði gat á fyllingu í brjósti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það kom að okkur LOKSINS!!!

jæja loksins kom að okkur að vinna.

Fannst við alveg eiga það skilið að vinna.

Vorum samt MJÖG heppin að írarnir skoruðu ekki fleiri mörk og að þeir skoruðu eitt stykki sjálfsmark!!!! En reyndar var Eiður Smári rétt hjá og var að pressa mikið.

Gaman samt að þessu

til hamingju ÍslandWhistling


mbl.is Ísland sigraði Norður-Írland 2:1
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ekki er öll vitleysan eins

Já sumir gefast ekki upp no matter what.

Segi bara nú fór RÚV endanlega með það!!!

Ég sem var farin að fíla þessa stöð en neibb þetta varð til þess að ég missti allan áhuga á að reyna að gefa þeim "one more change" eða að gefa þeim einn séns í viðbót.

 


mbl.is Andrea Róberts snýr aftur á skjáinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Helgan

Helga Sveinsdóttir
Helga Sveinsdóttir

Ég er bara ég. Ég er orginal.

Nýjustu myndir

  • ...acttpt

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 19
  • Frá upphafi: 506

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 19
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband